Um okkur

Um okkur

Frimurarabudin.is

Verið velkomin í vefverslun Frímúrarabúðarinnar.  Vefverslunin hóf göngu sína í desember 2023.  Stefnan er að hafa fjölbreytt úrval af vörum sem tengjast Frímúrurum og tengdum hugðarefnum þannig að sem flestir finni eitthvað fyrir sitt hæfi.

Ef þú hefur einhverjar spurningar, eða vilt koma með ábendingu endilega sendu línu á netfangið frimurarabudin@frimurarabudin.is eða með skilaboðum í gegnum Facebook síðu Frímúrarabúðarinnar.

Fylgdu okkur á Facebook og Instagram

 

Skilmálar

Frímúrarabúðin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.  Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru sendar með Dropp þjónustu og afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.  Ef vara er ekki til á lager og í pöntun þá er hægt að fá senda tilkynningu þegar hún er komin aftur í vefverslun.  Þar sem vörur koma víða að þá getur sendingartíma og tollafgreiðsla tekið mislangan tíma.  Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar og Frímúrarabúðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.  Ef varan týnist í flutningi eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Frímúrarabúðinni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.  Við sendum allar vörur með Dropp.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.  Varan þarf að vera í sínu upprunalega ástandi þegar henni er skilað.  Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil.  Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.  Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðlum ef þess er krafist.  Að öðru leiti vísast till aga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda Fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.  Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila

All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög.  Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands .

Governing law/Juridiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Upplýsingar um söluaðila

Söluaðili er LandArt ehf kt. 570902-2960 VSK nr: 76595
Netfang: frimurarabudin@frimurarabudin.is